14janúar

HALLÓ KALLÓ BIMBÓ!

JÆJA,ENN OG AFTUR ER ÉG KOMIN MEÐ NÝTT BLOGG!

VERÐ VONANDI DUGLEGRI ÞAR..ÆTLA M.A.S AÐ LOFA ÞVÍ! :)

KÍKÍÐ..OG KVITTIÐ!

reginadilja.webs.com
14. janúar 2010 klukkan 01:24
Regína Diljá
Engin athugasemd
25september

Jibbí jeiiij.. :)

Jæja,á maður að reyna eitthvað að endurlífga þetta blogg?? :) Orðið ansi langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna,enda ekki verið mikið að frétta..þar til nú. :D

Litla fjölskyldan okkar er sem sagt enn að stækka. Það verður ekki hægt að segja "litla" fjölskyldan mikið lengur,enda verðum við orðin 5 manna kjarnafjölskylda í aprílbyrjun 2010. Já þið lásuð rétt,ég er eigi kona einsömul,komin rúmar 12 vikur og allt gengur voða vel. Þrátt fyrir ógleðis óbjóðinn sem lætur mig ekki vera þessa meðgönguna frekar en þær fyrri. EN ég fæ frábær verðlaun að þessu loknu svo að ég reyni að kvarta ekki..ekki of mikið allavega. :)

Öll plön fyrir næsta ár standa, við stefnum á Ameríkuför svo að húsbóndinn geti nú menntað sig enn frekar næsta haust og brúðkaupið góða er að sjálfögðu STILL ON, en verður mánuði seinna en planað var. Næsta ár verður sem sagt viðburðarríkt ár hjá okkur to say the least. Árni verður þrítugur,litla krílið mætir á svæðið,brúðkaup og Ameríkuför. Spennandi tímar framundan. :)

Hvernig líst ykkur svo á litla krílið,fáið þið jafn mikla strákatilfinningu og ég? :)

Og fyrsta bumbumyndin. Það sést ekkert mikið á daginn,en á kvöldin! ÓBOJ! :D

En annars er allt gott að frétta af okkur. Róbert Elí LOKSINS orðinn 4 ára,og er ekki að hata það! :) Hann er í playmó allan daginn og mikill dundari. Hann er farinn að myndast við að lesa og skrifa einföld orð og er rosalega duglegur. :) Birkir Ísak er 17 mánaða í dag,alveg yndislegt lítið kúrudýr sem er svo duglegur á leikskólanum og finnst allt í heiminum ógeðslega fyndið! Ég sver það að barnið er alltaf hlæjandi!

Árni og co.eru komnir í úrslitaleikinn í VISA-bikarnum sem er geðveikt! Leikurinn er um næstu helgi og hvet ég að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja RÉTT lið! :) ÁFRAM BREIÐABLIIIIIIK!! :) :) :)

En jæja, ég held ég sé hætt í bili.

AÐÍÓ

r e g í n a :)
25. september 2009 klukkan 13:37
Regína Diljá
11 athugasemdir
17maí

Loksins!

Þar sem örverpið mitt var ekki nema 11 mánaða síðast þegar ég hripaði eitthvað á þetta annars ágæta blogg,en er í dag að slefa í 13 mánaða,þá þykir mér við hæfi að henda á ykkur einni til tveimur línum. Enda ekkert nema skandall í bloggheimunum ef ég legg þetta blogg niður.

Það gefur auga leið að ef sonur minn er að slefa í 13 mánaða,þá sé hann búinn að eiga sinn fyrsta afmælisdag. Sá merkisdagur var hinn sögulegi 25 apríl,en þá ákváðu stjórnvöld að reyna að stela þrumunni hans með því að skella kosningum á þennan fallega dag. En það tókst ekki,Birkir Ísak var stjarna dagsins og hefur svo sagt mér að honum fannst kosningarnar aldrei skyggja á dýrðarsól hans eða gleði þennan dag. Það er nú gott.



Fótbóltasumarið hófst svo þann 10 maí þegar Pepsi deildin hófst formlega. Þar tóku Blikar á móti Þrótturum og unnu þá 2-1. Síðan þá hafa þeir spilað einn leik,en það var á móti ÍBV í stormi í Eyjum og unnu þeir þann leik 1-0. Þannig að þetta byrjar vel hjá þeim og vonandi að þeir haldi sér á þessari siglingu áfram. Það er svo leikur á morgun við FH og er það sjónvarpsleikur þannig að þar gefst fólki einstakt tækifæri á því að sjá kraftaleg læri spúsa míns á flatskjáunum sínum. Einnig vil ég benda fólki á að fylgjast með "Klónni" eða the Claw,en hana myndar Árni Kristinn með hægri hönd í hvert skipti sem hann einbeitir sér að einhverjum sprettinum,sendingunni eða tæklingunni. Hann er svo fjölhæfur og afsannar þá kenningu að karlmenn geti bara gert einn hlut í einu. Hér hef ég svo splæst saman smá myndasyrpu þar sem Klóin sést í allri sinni dýrð.



Það styttist svo í það að ég reimi á mig háu hælana á nýjan leik og fari að þjóna farþegum Iceland Express með brosi á vör og með ánægju að sjálfsögðu.  Mikið hlakka ég til,þetta er endalaust skemmtilegt starf og ef þið bara vissuð hvað ég vinn með miklum snillingum. Það er sko alltaf gaman í vinnunni.

Annars hefur gripið mig mikil hlaupabaktería og hef ég fjárfest í snildinni Nike Plus til að fylgjast með árangri og framförum mínum. Þetta er ótrúlega gaman og ekki verra þegar það heyrist í vini mínum Lance Armstrong eftir gott hlaup þar sem hann segir mér að ég hafi bætt eigið met í meðalhraða á klukkustund. Æ hann Lance er bara fínn gaur. Í framhaldi af þessari bakteríu hefur verið stofnaður hlaupaklúbburinn Hallbjörn,en hann samanstendur af allavega 10 ungum og stórglæsilegum konum og hittumst við einu sinni í viku og göngum/skokkum og slúðrum. Bara yndislegt.


-vinur minn hann Lance-

Svo varð heimurinn svo mikið mikið fallegri þann 3 maí þegar elskuleg bróðurdóttir mín kom í heiminn. Hún var 13 merkur og 50.5 cm. og lang fallegust og algerlega fullkomin. Enda á hún frábæra foreldra og fjölskyldu í báðar áttir. :D Ég er svo yfir mig skotin í þessari elsku,enda krúttan ekki nema 2 vikna gömul og ég á orðið nokkur hunruð myndir af henni. Ég hlakka svo til að fylgjast með henni vaxa og dafna og stefni ótrauð á titillinn "Uppáhalds frænka" og mun ég sinna þeim titli af miklum eldmóð og metnaði.







Heimurinn mun svo verða ennþá yndislegra á næstu mánuðum enda von á nokkrum krílum í vinkonuhópinn. Íris Erla er næst,og ekki nema einhverjir dagar í settan dag hjá þeirri fallegu perlu. Svo í ágúst bætast 3 kríli í hópinn,einn drengur hjá Auði elsku Ösp,og svo hvorki meira né minna en einn strákur og ein stelpa hjá ástinni minn Evu Ruzu. Eva verður myndarlegri og myndarlegri með hverjum deginum sem líður og loksins loksins loksins þegar allt gekk upp hjá þeim í barnagerðinni,þá gengur allt eins og í sögu. Svona á þetta að vera. :D


-Eva vælir reyndar svolítið mikið,en það er alltílæ! ;)

--------

En núna er ég búin að vera ofsa duglega bloggstelpa og þar sem sólin skín loksins í heiði og rokið heldur sig til hlés þá ætla ég að setja punktinn hér og æða hress og kát út í sumarið. Róbert Elí er að fara að kíkja á nýfædd lömb og fleiri skemmtilega dýr í sveitinni hjá Pésa frænda sínum og Birkir Ísak ætlar í heimsókn til ömmu sinnar og afa í Kópavogi á meðan við foreldrarnir ætlum að skella okkur austur fyrir fjall,fara í sund á Ljósafossi og skella okkur svo á Þingvelli og hygge okkur svolítið tvö saman. Það er ljúft svona einstaka sinnum,þó svo að maður eigi heimsins yndislegustu börn. ;)

Bæ í bili.
Regína :o)


17. maí 2009 klukkan 12:19
Regína Diljá
8 athugasemdir
25mars

11 mánađa.

Birkir Ísakinn minn er 11 mánaða í dag!
11 mánaða!!
ha?
Ótrúlegt!
-----

Hann er svo mikið bestur og yndislegastur..
..svo mikill gleðigjafi og ég er endalaust montin af þessum dreng sem brosir og hlær allan daginn út og inn.
 Það er allt svo skemmtilegt hjá honum að það hálfa væri nóg.












B E S T U R ! ! !
:)

25. mars 2009 klukkan 16:49
Regína Diljá
8 athugasemdir
10mars

....

Heil og sæl!

Ég er nú ekki í miklu stuði til að reyta af mér fróðleiksmolana né brandarna hérna akkúrat núna. Ég er svo voðalega löt og þreytt ef ég á að vera hreinskilin. Birkir Ísak sér til þess að við Árni séum nú alveg örugglega ekki of vel sofin þessa dagana með því að heimta drykk og dekur nokkrum sinnum á nóttu.

Það er svo sem nóg annað að gera heldur en að blogga þessa dagana. Ég byrja á 2 vikna námskeiði fyrir vinnuna á mánudaginn næsta,og þarf að læra mikið fyrir það. Birkir Ísak byrjar hjá dagmömmu sama dag og því hver mínúta nýtt í knús og misskemmtilega leiki. Svo erum við að taka herbergið hans Róberts í gegn og endurgera það alveg,og það er ágætis tími sem fer í það. Það þarf að mála,tæma Ikea,setja saman hillur,borð,stóla..og svo mikið mikið meira. Og ég set þær kröfur á okkur húsbóndann að þetta verði búið fyrir mánudaginn þegar ég byrja á námskeiðinu. Við mössum þetta,engin spurning! Ég skal svo henda inn myndum af herberginu hans þegar það er tilbúið þar sem ég er handviss um það að ykkur langar alveg ógeðslega mikið til að sjá það. ;)

Annars er allt gott að frétta af Valla-genginu. Árni Kristinn er búinn að skrifa undir nýjan samning við Blikana,þannig að það verður enn eitt fótboltasumarið í sumar. Sem er auðvitað bara gaman. Róbert Elí er í tilvistarkreppu þar sem hann getur bara ekki sætt sig við það að vera bara þriggja og hálfs,en ekki fjögurra ára. Honum þykir þetta bara SVINDL,það er ekkert flóknara en það. Og Birkir Ísak er að komast að því að hann geti öskrað fáránlega hátt og stundar þá stórskemmtlegu iðju allan liðlangan daginn. Mér til ómældrar gleði eins og þið getið rétt ímyndað ykkur. ;)

Að lokum henti ég svo inn einhverjum myndum frá matarboðinu hjá Tinnu á laugardaginn. Þangað mætti ég með ljótuna vinkonu mína með í för,og gæddi mér á dýrindis sjávarréttarsúpu og Jamie Oliver brauði..og renndi þessu auðvitað niður með smá hvítvínsdreitli. Systa söng og dansaði við Single Ladies og tilkynnti þáttöku sína í Ungfrú Rvk. 2010. Undirbúningur er þegar hafinn. Ónefnd stúlka fór svo á kostum þar sem hún steig sín fyrstu skref í Opal staupun og Sjöfn Dröfn endaði kvöldið raddlaus. Eva Ruza eyddi mestu af kvöldinu ber að ofan enda hrikalega montin af vaxandi mjólkurbúinu. Takk fyrir frábært kvöld allar elskurnar,þið eruð mínar einustu elskulegustu ástir. Ég ætla svo að vera næst til að bjóða heim í mat, stefni á einhverja mjög sexí dagsetningu í apríl.

Friður sé með yður



R E G Í N A
10. mars 2009 klukkan 17:27
Regína Diljá
6 athugasemdir
02mars

Meira Hollywood...

Ég er svo mikill Julia Louis-Dreyfus fan að það hálfa væri nóg. Enda er ég mikill Seinfeld aðdáandi,og eitt af mínum uppáhalds sjónvarpsatriðum fyrr og síðar er þegar Elaine dansar.
"With the thumbs and the kicks and all."
Elaine er svo mikill snilldar karakter.



Hér er kella svo,"ekki nema" 48 ára takk fyrir pent!



Ein hérna, ekki svo flattering af hinni annars flottu Debru Messing.



-Jimmy Kimmel mismældi sig aðeins þegar Calista Flockhart var hjá honum nýlega-



Svo herma fréttir að Michelle Obama sé ekki að fíla vinkonu mína Opruh Winfrey þessa dagana vegna þess að Oprah hafi daðrað svo ofboðslega við Barack Obama á meðan á kosninunum stóð:

“Oprah marched into the White House with Gayle King in tow like she owned it. (Oprah) believes she played a major role in getting President Obama elected and expects to be treated like royalty when she calls on them. But Michelle had other ideas. She appreciates that Oprah endorsed her husband, but considers her role minor in getting him elected.

The insider says that Michelle knows that they weren’t having an affair, but she felt it was as if Oprah wanted people to wonder. The trouble at the White House started when Oprah walked in and went to greet Michelle with a kiss on the check and Mrs. Obama stepped back and shook her hand instead. Then during the interview, Michelle completely ignored The O and instead focused on Gayle.

“Oprah felt completely left out of the conversation. And it was obvious that was how Michelle intended for her to feel. By the end of the interview, Oprah was seething!”

-----------------------------------

 

Og ekki svo mikið uppáhaldið mín hún Mischa Barton hérna í veeel photoshoppaðri myndatöku. Flottar myndir engu að síður.

Pamela er ekki alveg að gera sig hérna. Væri maður ekki stoltur af mömmu gömlu ef það væru svona myndir af henni á netinu í tonnavís. Ótrúlega tekin og plain tacky!


Og ein Lindsay að lokum. Þó það sé kreppa og allt það,þá hlýtur hún að hafa efni á einum ostborgara og frönskum með???


02. mars 2009 klukkan 16:05
Regína Diljá
12 athugasemdir
24febrúar

Hollywood!

Mikið ofboðslega var mikið af ljótum kjólum á Óskarsverðlaununum í ár. Ég held að Beyonce hafi samt átt vinninginn í þeim efnum. Afspyrnu ljótur kjóll og hún pósaði eins og hún hefði verið að japla á einhverju ólöglegu rétt áður en hún mætti. Hún sem er (yfirleitt) svo klassí..magnað að enginn hafi sagt við hana að hún yrði hökkuð í spað af tískulöggum um allan heim ef hún myndi voga sér út fyrir hússins dyr í þessum gardínuafgöngum. Þá finnst mér svanakjóllinn hennar Bjarkar skárri.


Annar af uppáhaldskjólunum mínum á hátíðinni var kjóllinn hennar Evan Rachel Wood. Ó hvað hann er plein og fagur! Hann blandast samt ógurlega við hvítt hörundið hennar..rauðari varir og aðeins rauðara hár hefði gert mikið. EN kjólinn er SJÚKUR!



EN hér er UPPÁHALDS kjóllinn minn... Marisa Tomei  mætti í þessum ó svo fallega Versace kjól.

Ég er bara orðlaus..einn sá allra fallegasti sem eg hef séð lengi lengi.



Og svo var Lindsay Lohan í semi-nude myndatöku á dögunum. Mér verður illt af því að sjá hvað hún er orðin horuð. Mér finnst hún alltaf flottust með svolítið utan á beinunum. EN hún er með fallegt hár! PANT!


Og HVAÐ er að gerast hér? Lisa Rinna úr Melrose Place alveg að missa það í aðgerðunum! Mikið er þetta ólekkert. Svo mikil synd þegar þessar fallegu konur geta ekki bara verið sáttar..og enda svo eins og kattarkonan sem Eva Ruza er obsessed með. -Ja eða eins og Michael Jackson bara.



FLEIRI SEM HAFA MISST ÞAÐ:


Mér fannst Prisilla Presley fallegasta kona í heimi þegar ég var lítil og sat dag eftor dag og horfði á Naked Gun. Mér fannst hún líka svo einstaklega heppin að hafa verið gift Elvis Prestley,en ég var voðalega skotin í honum þegar ég var bara smástelpa.

-Ég öfunda hana ekki lengur.


Nikki Cox úr Las Vegas þáttunum.


Þessa þekkja nú allir. Hún er öfgamanneskja út í gegn,þegar kemur að útlitinu.


Þetta er að sjálfsögðu toppurinn á geðveikinni.

-----------------------------

-jæja gott fólk,

ég er að sofna ofan í tölvuna..ætla að henda mér í bælið.


AÐÍÓ


r e g í n a :)

 

 

24. febrúar 2009 klukkan 22:24
Regína Diljá
9 athugasemdir
12febrúar

!

Hæ elskurnar, mikið þykir mér vænt um það hvað þið voruð dugleg að kommenta á síðustu færslu,þó svo að það sé orðið svolítið mikið langt síðan ég skrifaði hana. Ég lofaði víst að vera duglegri hérna,og ætla að reyna að standa við það. Það er nefnilega ljótt að lofa og svíkja. Þetat er samt rosalega mikið Facebook að kenna. Það fer einhvern veginn allt þangað inn þannig að ég nenni ekki að endurtaka mig hér. EN núna ætla ég að fara að setja myndirnar mínar hingað inn aftur þar sem ég lenti í ljótu leiðindarmáli út af myndum sem var STOLIÐ af Facebook síðunni minni og settar í Séð og Heyrt takk fyrir. Passið myndirnar ykkar kids! 

En er það bara ég eða FLÝGUR tíminn áfram?? Það er kominn fimmtudagur,en mér finnst hafa verið föstudagur í gær! Þetta er kannski ágætt því þá verður sumarið komið áður en maður veit af. -Samt svolítið langsótt þar sem það er svo ísjökulkalt hérna á þessu skeri að mér er hreinlega alltaf kalt og alltaf með eitthvert kvef og illt í hálsinum eins og aumingi. Það fylgir svo þessum einkennum að vera með króníska ljótu og ég tel Árna bara nokkuð góðan að geta búið með þessu sívælandi ljótuskrímsli án þess að þurfa hreinlega á einhverri sálfræðiaðstoð að halda. Hann er sterkur hann Árni,alvöru karlmaður!

En ómæ, sorrý gotta gó! Glæstar vonir voru að byrja og ég er ansi hrædd um að Taylor eða Nick verði kennt um morðið á Shane McGrath..sem var svo alls ekkert morð! Ó litli mannfjandinn hann Ridge Forrester..alltaf að gera allt brjálað! VERÐ að fylgjast með þessu..!

BÆ KIDDÓS!

r  e  g  í  n  a  :)

-ein uppáhalds að lokum:



-ekkert svo skítugur, er það nokkuð???
Laughing
12. febrúar 2009 klukkan 10:15
Regína Diljá
10 athugasemdir
14janúar

Ć mig auma..

..ó hvað mig dreymir um 10 tíma nætursvefn, án nokkura truflana. Í nótt tók hann Birkir minn upp á því að vakna ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur ca.15 sinnum, þar til hann vaknaði galvaskur klukkan 05:50! Það er eintómt vesen að eiga svona A-týpu börn. Ég sé ekki fram á almennilegan nætursvefn í allavega 10 ár í viðbót. Ég er sko með baugana til að bakka þessa skemmtilegu sögu upp, og svo er það auðvitað geðvonskan sem geysir sem aldrei fyrr. Það klæðir mig afskaplega illa að vera þreytt.



-svo ofan á allt þetta þá bara kyngir niður snjó! Ég man ekki eftir því að hafa lagt inn pöntun fyrir þessu veðri! Ég sem var að komast í (ótímabæran) sumarfíling! Æ mig auma.

En svona utan þessa að ég sé þreytt, með bauga niður á hné og eilítið pirruð, þá er allt gott að frétta svei mér þá. Birkir Ísak er farinn að skríða, orðinn hættulegur m.a.s. Það er ekki í boði að sleppa af honum augunum eitt andartak þegar hann er on the go. Hér er allt tætt og tiltektin sem fylgir þessu er ofsalega skemmtileg(sjáið hvað ég er að reyna að vera jákvæð). Hann kann líka að segja mamma(auðvitað!),pabba,hæ!,datt og NEI! Duglegur strákur, enda ekki við öðru að búast. ;)



Og þó ég ætli nú að halda fréttum af strákunum á þeirra síðu, þá verð ég nú að segja ykkur hverju unglingssonur minn(eða svona næstum því) tók upp á í gærkvöldi. Hann er alveg rosa hrifinn af því að tússa, en virðist hafa erft það frá móður sinni að teikna svolítið fast þannig að hann skemmir tússlitina sína á no time. Þar sem ég vil ekki blokka sköpunargáfuna hjá litla listamanninum sem teiknar hverja geimflaugina á fætur annari(hann teiknar ekkert annað,án gríns) þá fór ég og keypti nýja tússliti fyrir hann í gær þar sem hann vill ekki lita með neinu öðru. Þvílík hamingja þegar hann fékk nýju litina, mamma var sko best og brosið náði yfir allt andlitið. Hann fékk leyfi til að teikna inni í sínu herbergi, og svona eftir á að hyggja þá voru það mistök að leyfa það. Eitthvað hefur pilti þótt leiðinlegt að jólin væru búin, því þegar ég kem inn til hans þá sé ég "listaverk" út um allt herbergi! Á hurðinni, á veggjunum, á dótinu, bara nefnið það! Og það var ALLT herbergið! Hann haði klifrað upp á kommóður til að geta krotað á vegginn þar fyrir ofan. Það var sko metnaður í þessu hjá honum. Mér brá vitanlega og hrópaði "Róbert Elí!". Þá horfði hann bara á mig stórum augum, fór að gráta og sagði "En mamma, þetta er JÓLASKRAUT!!!"
Ég þakkaði bara fyrir það að hafa keypt "super washable" tússlitina.



Við Árni erum svo búin að plana næstu 3 á fram í tímann, en á þeim tíma verður brúðkaup,flutningar til Bandaríkjanna,mesterslok hjá Árna,heljarinnar brúðkaupsferð og annað barn. DJÓK þetta með barnið, en allt hitt er satt! ;) Þetta er sem sagt planið okkar, og það þarf eitthvað að koma upp á til þess að það verði ekki af þessu. Það eru sko spennandi tímar framundan ef allt fer að óskum, og ég hlakka til að geta farið að plana bryllaup og Ameríkuferð. :)

-sjáið hvað þessi var fín þegar hún gifti sig!


En þangað til ætla ég að hlakka til sumarsins, en sumarið verður komið áður en maður veit af. Við Sjöfn ætlum m.a.s í "mömmufrí" til Köben einhvern tímann í sumar, skilja alla mennina okkar eftir heima í 2-3 daga og fara að hafa það kósý á Strikinu með öl í annari og HM poka í hinni.

Svo ætla ég bara að enda þessa ritgerð á því að óska vinum okkar Ásgerði og Þorsteini til hamingju með litla kútinn, sem ég er orðin ansi spennt eftir því að hitta. Hann fæddist 10 jan, og var NÁKVÆMLEGA jafn stór og þungur og ég hafði spáð fyrir um. Þess vegna á ég inni bland í poka fyrir 50 kall hjá Tinnu, því hún tapaði þessu veðmáli illilega. In yo face!

BÆ Í BILI

r  e  g  í  n  a  :)
14. janúar 2009 klukkan 10:02
Regína Diljá
17 athugasemdir
08janúar

JĆJA!!

VÁ, ég hef ekki einu sinni kíkt á mitt eigið blogg síðan ég veit ekki hvenær! Surprised -Það var varla að ég myndi leiyniorðið..

En eins og alltaf ætla ég að reyna að blása örlitlu lífi í þessa síðu..ef ég væri ekki búin að blogga síðan 2003 þá myndi ég bara hætta, en ég einhvern veginn "tími" því ekki.. Hvað er það?

Jólin okkar voru yndisleg, svo róleg og þægileg. Við vorum með okkar eigin jól í fyrsta sinn, en við nenntum ómögulega flakki með tvo litla grísi og alla pakkana sem þeim fylgja á sjálft Aðfangadagskvöld. Þess í stað fengum við fjölskyldu Árna til okkar, og haldiði að mín hafi ekki bara galdrað fram þessa líka vel heppnuðu jólamáltíð; hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Ég sló í gegn gott fólk, þó ég segi sjálf frá. Matarást Árna á konu sinni jókst enn meira við þessi snilldarbrögð mín í eldhúsinu. BRAVÓ fyrir mér.



Gamlárskvöldi eyddum við svo bara ein heima. Róbert Elí greyið er svo taugaveiklaður þegar kemur að flugeldum (ásamt svo mörgu öðru) að hann fór að sofa snemma til að "sleppa frá sprenginu". :) Birkir sofnaði líka á skikkanlegum tíma, þannig að þetta endaði með því að við Árni borðuðum bara tvö og sötruðum rauðvín. Svo bara horfðum við á óvenju gott skaupið og skáluðum svo þegar nýja árið gekk í garð. Allt rosa rólegt, en bara yndislegt og þæglegt. :)



Strákarnir mínir eru alltaf jafn frábærir og fullkomnir, og Árni auðvitað líka. ;) Birkir Ísak er orðinn 8.5 mánaða, spáið nú aðeins í því! Eftir 3.5 mánuði verðurinn drengurinn stjarnan í eigin afmælisveislu! GUÐ! Og fyrr en varir þarf ég að láta hann frá mér í daggæslu og það svíííður í mömmuhjartað get ég sagt ykkur! Ég næ þó að vera með hann heima þar til hann verður 11-12 mánaða og það er bara nokkuð gott! :)



Róbert Elí er snillingur get ég sagt ykkur, hann er ekki til í að kveðja jólin strax, les jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum á hverjum degi og er á góðri leið með að læra þau utan að. Hann segist elska Grýlu, því að ef hann elski hana þá vilji hún ekki borða hann. Ágætis pæling. Svo er það spurningaflóðið sem dynur á okkur Árna á hverjum einasta degi. "Hvað er hlutur? Afhverju bý eg hér? Hvað er rigning? Hvað er frost? Hvað er að æmta og skræmta? Hvað er NES?" OH BOY, stundum vitum við ekki hvað við eigum að segja. Hann er svo mikill lestrarhestur og maður kemst ekki í gegnum eina blaðsíðu án þess að hann stoppi mann nokkrum sinnum til að spyrja hvað hitt og þetta orðið þýði. Best var samt þegar hann spurði mig í IKEA um daginn "Mamma, elskar þú pabba jafn mikið og ég elska Birki?". Já bræðrakærleikurinn er strax orðinn ansi sterkur og það er bara BEST! :)



Núna erum við Sjöfn og Erla komnar af stað í ræktinni, eins og væntanlega allir aðrir landsmenn svona í ársbyrjun. Ég og Sjöfn fórum í nokkurs konar BodyPump tíma á mánudaginn og ég er ennþá að líða fyrir þennan tíma. Guð minn aaaalmáttugur hvað ég er með mikla strengi í lærunum!!! Þetta er sko ekki svona gott/vont heldur bara VONT! -og venst ekki einu sinni!

En nú finn ég munnræpuna bara styrkjast og styrkjast, og ætla að setja punkt hér áður en ég fer að skrifa um eitthvað hundleiðinlegt og ómerkilegt..Kannski var þetta blogg bara hundleiðinlegt og ómerkilegt? Anyways, ég vil bara enda þetta á því að kalla á litla vin minn í bumbunni hennar Ásgerðar..KOMDU ÚÚÚT! :)

BÆ Í BILI

r  e  g  í  n  a  :)



P.S EF EINHVER LES ÞETTA ENNÞÁ ÞÁ MÁ SÁ HINN SAMI ENDILEGA SKILJA EFTIR SIG SPOR Í KOMMENTAKERFINU HÉR FYRIR NEÐAN. VÆRI EKKERT SÉRSTAKLEGA SKEMMTILEGT AÐ VERA AÐ BLOGGA BARA FYRIR SJÁLFA SIG. :)
08. janúar 2009 klukkan 12:32
Regína Diljá
12 athugasemdir
07desember

NYC BABY..!

Jæja, þá er ég farin til NY og komin hem aftur. Ég átti yndislegar stundin í New York með Natöshu minni, verslaði furðu mikið miðað við hátt gengi dollarsins og fór svo að hitta vinkonu mína Tinu Turner þar sem hún söng fyrir mig nokkra slagara og gerði allt brjálað. Konan sú er 69 ára takk fyrir, og hljóp í 3 tíma út um allt svið á pinnahælum og blés ekki úr nös. Ég held við höfum verið eitt sólheimabros alla tónleikana, og það er hálf vandræðalegt að skoða myndböndin sem ég tók upp því það heyrist alltaf í mér syngja fyrir aftan og öskra eins og alger bjáni "TIIIINA!!". :) Takk enn og aftur elsku besti Árni minn fyrir bestu afmælisgjöf í heimi!







Tina elskan var samt ekki eina celeb-ið sem við rákumst á, heldur sáum við líka Brooke, Nathan og Dan úr ógeðis þættinum One Tree Hill í Leifsstöð á leiðinni út (Brooke og Nathan bara alvöru kærustupar, í sleik og allt), svo lentum við á útitónleikum í NYC með Jonas Brothers, Tony Bennett, hinni óþolandi Miley Cyrus og fleirum. Mér skilst að Beyonce hafi verið þar líka en að við höfum misst af henni. Natasha er svo alveg viss um að hafa mætt Lucy Liu og svo mættum við leikara sem ég bara GET EKKI munað hvað heitir og það er að gera mig brjálaða!! -Þannig að já, þvílík stórstjörnuferð.. :)

---------------

Við vorum á Long Beach hjá Sigga frænda og Lis konunni hans og þau eru best í heimi. Þvílíkt sem þau stjana alltaf vð mann. Það er svo á langtímaplaninu að vera á Long Beach að sumri til því að þar er ótrúlega falleg strönd og bara svo hrikalega sætur bær. Árni bjó þar þegar hann var úti í skólanum, en samt hefur hann ekki upplifað sumar þar því hann fór alltaf heim að spila fótbolta á sumrin. Svo ætlum við Árni að flytja inn á Manhattan í einhverja fallega loft íbúð þegar við erum orðin fullorðin og börnin flogin úr hreiðrinu. ;) Ég er svo yfir mig ástfangin af þessari borg og bara fæ hreinlega ekki nóg af henni.

Við sáum allt þetta venjulega; Central Park, Empire State, Soho, China Town, Rockefeller center, Times Square og mitt persónulega uppáhald 5th avenue(shallow?). Einn daginn ætla ég að geta gengið 5th avenue og gera meira en bara "window-shoppa". Þá skal ég ganga inn í Salvatore Ferragamo eins og ekkert sé eðlilegra og kaupa mér sitthvað fallegt. Ef ég hefði vogað mér þar inn núna og keypt mér kjólinn og skóna sem ég DÓ yfir í glugganum, þá hefði ég verið ca. 5 ár að borga það niður. :)


Við versluðum nú samt alveg slatta, fjölskyldan er öll komin með ný jólaföt þannig að jólakötturinn lætur okkur vera þessi jólin. Allar jólagjafir eru komnar og það er mikill léttir að vera búinn að því.

Ég saknaði strákanna minna mikið mikið, en Árni stóð sig eins og hetja einn heima með þá, skellti sér m.a.s einn með þá báða í sund einn daginn. :) Mér var svo tekið eins og stórstjörnu þegar ég kom inn um dyrnar í gærmorgun, þeir svoleiðis stukku á mig strákarnir..-eða allavega Árni og Róbert, Birkir æstist bara allur upp og baðaði út höndunum með sólskinsbros á vör. Svo má mamma ekki fara úr augsýn án þess að hann verði ofsalega sár. Greinilega gott að vera búinn að fá mömmu sína aftur. :)


-en jæja, maður tímir ekki að eyða tímanum í tölvuna þegar maður er loksins kominn heim til bestu stráka í heimi. Ég er farin að leika, væntanlega í ljóna eða risaeðluleik. Bæ í bili.

r e g í n a

07. desember 2008 klukkan 09:37
Regína Diljá
8 athugasemdir
24nóvember

Brćđurnir Árnasynir..

Jæja þá er ég komin með nýja síðu fyrir strákana mína. Slóðin er 123.is/arnasynir

Endilega athugið þetta, og kvittið fyrir innlitið. P.S ég á eftir að setja inn fullt af myndum og allskónar gamanefni og fróðleik af þeim bræðrum Árnasonum..

Bæ í Bili

REGÍNA
24. nóvember 2008 klukkan 19:51
Regína Diljá
Engin athugasemd
13nóvember

Mínir bestu og bestu..

Ég er svo heppin að eiga tvo heilbrigða og yndislega stráka, eins og hefur kannski ekki farið framhjá ykkur. -Og annað sem hefur kannski ekki heldur farið framhjá ykkur er það að ég virðist óstöðvandi þegar kemur að monti af börnunum mínum. -og ég er sko ekkert að fara að hætta því, þannig að..

..gerið svo vel..













..SÆTIR??

;)

(P.S LJÓSMYNDARINN HEITIR ÍRIS PÉTURSDÓTTIR OG ÞIÐ GETIÐ SÉÐ SÍÐUNA HENNAR HÉR. HÚN ER FRÁBÆR OG FÆR OKKAR 100% MEÐMÆLI!)
13. nóvember 2008 klukkan 19:31
Regína Diljá
9 athugasemdir
07nóvember

Smá bara svona ţar til nćst..

Sorrý fólks, hef ekki verið dugleg að blogga enda búin að vera óvenju bissí síðan við komum heim frá Tene.

Ég er reyndar bissí núna og verður blogg þetta í styttri kantinum.

Ætla bara að kasta þessari spurningu hér fram, því að þetta er mé algerlega óskiljanlegt.

Mynduð þið halda framhjá þessari:



..með þessari?



Svei mér þá hvað ég held að vanti margar skrúfur í greyið hann Ashley Cole !!!!
07. nóvember 2008 klukkan 17:07
Regína Diljá
7 athugasemdir
27október

Þá erum við fjölskyldan komin heim frá Tenerife. Ferðin var ÆÐISLEG í einu orði sagt. Tenerife er frábær staður semég mæli eindregið með, þá sérstaklega fyrir barnafólk. Allt til alls og NÓG um að vera fyrir börn! Einhvern tímann á næstu 2 árunum verðum við vinkonurnar að fara saman með krakka og kalla til Tene, en krakkaskarinn er orðinn nokkuð stór og er enn að stækka. :) Næsti krógi væntanlegur 5 jan og ég er sko orðin SPENNT!! Mér finnst Ásgerður greyið vera búin að vera ólétt í ca. 2 og hálft ár ég get svo svarið það. Surprised

Róbert Elí fór á kostum í ferðinni og hélt uppi stuðinu eins og honum einum er lagið. Eitt skiptið sat hann t.d við borðstofuborðið aleinn og var að boða jógúrt, og við Árni vorum að horfa á sjónvarpið. Hann er eitthvað að muldra við sjálfan sig og svo heyrist allt í einu "S24, og þú hagnast!!" Múhahaha..ég hélt ég yrði ekki eldri! Við vorum nótabene búin að vera útí í 11 daga og hann ekki búinn að horfa á íslenskt sjónvarp í allan þann tíma..en nei nei..bara S24 og þú hagnast takk fyrir.
Laughing

Birkir Ísak hélt svo bara sínu striki og var sama sólskinsbarnið og alltaf. Fólk talaði endalaust um það hvað þetta væri óvenju brosmilt barn og hvað hann væri góður og við fengum OFT spurninguna "heyrist aldrei í þessu barni?". :)

Við fengum 4 skýjaða daga þessar 2 vikur, en það kom ekki að sök, það var samt aldrei undir 26 stiga hiti. En það stoppaði okkur Íslanedingana ekki í því  að væla yfir því að geta ekki flatmagað í olíubaði í kapphlaupi við að verða eins brún og mögulegt er. :) Enda held ég að ég hafi barasta ALDEI komið hvítari heim, enda nóg um að vera þegar ferðast er með börn..þá gengur ferðin algerlega út á þá, sem er bara frábært og yndislegt að fá að upplifa útlanda ævintýrið í gegnum Róbert Elí. :)

En núna styttist óðum í næstu útlandaferð, NY ævintýrið okkar Natöshu..Bara mánuður í það! Jibbí..Tina bíður okkar spennt hef ég heyrt og hún samdi víst lag okkur til heiðurs sem hún ætlar að flytja á tónleikunum, mig minnir að það heiti Simply the Best. Fólk alveg ó-ar og æ-ar þegar ég segist vera á leiðinni til USA "ææææ en dollarinn er svo hár!"..það liggur við að fólk vorkenni mér. EN þó dollarinn sé hár þá er alltaf já ALLTAF ódýrara að versla úti og hvað þá jólagjafirnar nú þegar verðbólgan hérna heima er komin í 16 prósent og hækkar bara. Þannig að jújú, maður á kannski ekki eftir að missa sig jafn svakalega og áður, en ég mun að sjálfsögðu kíkja í eina búð eða tvær. ;)

En ó mig auma hvað mér þykir erfitt að hrista af mér jólafílinginn sem hefur heltekið hverja einustu taug í líkamanum mínum. Það er eitthvað við hvíta jörð, kuldann, myrkrið sem setur mig í alveg blússandi jólafíling. Ég er að berjast við löngunina um að fara að hlusta á jólalög og baka Sörur svei mér þá. En ég er samt búin að gera jólagjafalista og ég ÆTLA að vera í jólakortaflóðinu þetta árið, búin að slugsa allt of mikið við það undanfarin ár. Ég er líka dottin í svakalegan bakstursgír og það nánast gerist ekki að íbúðin sé ekki undirlögð af bakstursilm..mmmm.. :)

En vitið þið, ég er búin að setja mér það takmark að vera DUGLEGRI AÐ BLOGGA, og ef að andinn kemur ekki yfir mig á næstu vikum þá er þetta bara dautt. En ég ætla að REMBAST við að finna bloggandann, ég lofa ykkur því!

Annars setti ég inn ekki nema rúmlega 500 myndir (af 3000 myndum) frá Tenerife á myndasíðuna. Tékkið á þeim, be my guest people!! Yfir 300 myndir bara af mér á bikiníi..NOT..

Og svo þætti mér óskaplega vænt um eitt komment eða tvö við þessa færslu, ef þið vilduð vera svo væn.

Friður sé með yður
-ekki veitir af á þessum síðustu og verstu-

Er farin að taka kjúllabringur a la Regína úr ofninum!
-svo er það Mr. Landsbanki í Kompás á eftir! INTERESTING!

A Ð Í Ó S

r  e  g  í  n  a  : )

--og svo smááá svona myndaflóð--






























27. október 2008 klukkan 19:14
Regína Diljá
9 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Stađur: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur