Þá erum við fjölskyldan komin heim frá Tenerife. Ferðin var ÆÐISLEG í einu orði sagt. Tenerife er frábær staður semég mæli eindregið með, þá sérstaklega fyrir barnafólk. Allt til alls og NÓG um að vera fyrir börn! Einhvern tímann á næstu 2 árunum verðum við vinkonurnar að fara saman með krakka og kalla til Tene, en krakkaskarinn er orðinn nokkuð stór og er enn að stækka. :) Næsti krógi væntanlegur 5 jan og ég er sko orðin SPENNT!! Mér finnst Ásgerður greyið vera búin að vera ólétt í ca. 2 og hálft ár ég get svo svarið það. Surprised

Róbert Elí fór á kostum í ferðinni og hélt uppi stuðinu eins og honum einum er lagið. Eitt skiptið sat hann t.d við borðstofuborðið aleinn og var að boða jógúrt, og við Árni vorum að horfa á sjónvarpið. Hann er eitthvað að muldra við sjálfan sig og svo heyrist allt í einu "S24, og þú hagnast!!" Múhahaha..ég hélt ég yrði ekki eldri! Við vorum nótabene búin að vera útí í 11 daga og hann ekki búinn að horfa á íslenskt sjónvarp í allan þann tíma..en nei nei..bara S24 og þú hagnast takk fyrir.
Laughing

Birkir Ísak hélt svo bara sínu striki og var sama sólskinsbarnið og alltaf. Fólk talaði endalaust um það hvað þetta væri óvenju brosmilt barn og hvað hann væri góður og við fengum OFT spurninguna "heyrist aldrei í þessu barni?". :)

Við fengum 4 skýjaða daga þessar 2 vikur, en það kom ekki að sök, það var samt aldrei undir 26 stiga hiti. En það stoppaði okkur Íslanedingana ekki í því  að væla yfir því að geta ekki flatmagað í olíubaði í kapphlaupi við að verða eins brún og mögulegt er. :) Enda held ég að ég hafi barasta ALDEI komið hvítari heim, enda nóg um að vera þegar ferðast er með börn..þá gengur ferðin algerlega út á þá, sem er bara frábært og yndislegt að fá að upplifa útlanda ævintýrið í gegnum Róbert Elí. :)

En núna styttist óðum í næstu útlandaferð, NY ævintýrið okkar Natöshu..Bara mánuður í það! Jibbí..Tina bíður okkar spennt hef ég heyrt og hún samdi víst lag okkur til heiðurs sem hún ætlar að flytja á tónleikunum, mig minnir að það heiti Simply the Best. Fólk alveg ó-ar og æ-ar þegar ég segist vera á leiðinni til USA "ææææ en dollarinn er svo hár!"..það liggur við að fólk vorkenni mér. EN þó dollarinn sé hár þá er alltaf já ALLTAF ódýrara að versla úti og hvað þá jólagjafirnar nú þegar verðbólgan hérna heima er komin í 16 prósent og hækkar bara. Þannig að jújú, maður á kannski ekki eftir að missa sig jafn svakalega og áður, en ég mun að sjálfsögðu kíkja í eina búð eða tvær. ;)

En ó mig auma hvað mér þykir erfitt að hrista af mér jólafílinginn sem hefur heltekið hverja einustu taug í líkamanum mínum. Það er eitthvað við hvíta jörð, kuldann, myrkrið sem setur mig í alveg blússandi jólafíling. Ég er að berjast við löngunina um að fara að hlusta á jólalög og baka Sörur svei mér þá. En ég er samt búin að gera jólagjafalista og ég ÆTLA að vera í jólakortaflóðinu þetta árið, búin að slugsa allt of mikið við það undanfarin ár. Ég er líka dottin í svakalegan bakstursgír og það nánast gerist ekki að íbúðin sé ekki undirlögð af bakstursilm..mmmm.. :)

En vitið þið, ég er búin að setja mér það takmark að vera DUGLEGRI AÐ BLOGGA, og ef að andinn kemur ekki yfir mig á næstu vikum þá er þetta bara dautt. En ég ætla að REMBAST við að finna bloggandann, ég lofa ykkur því!

Annars setti ég inn ekki nema rúmlega 500 myndir (af 3000 myndum) frá Tenerife á myndasíðuna. Tékkið á þeim, be my guest people!! Yfir 300 myndir bara af mér á bikiníi..NOT..

Og svo þætti mér óskaplega vænt um eitt komment eða tvö við þessa færslu, ef þið vilduð vera svo væn.

Friður sé með yður
-ekki veitir af á þessum síðustu og verstu-

Er farin að taka kjúllabringur a la Regína úr ofninum!
-svo er það Mr. Landsbanki í Kompás á eftir! INTERESTING!

A Ð Í Ó S

r  e  g  í  n  a  : )

--og svo smááá svona myndaflóð--






























27. október 2008 klukkan 19:14
Regína Diljá
Eva María skrifar ...
Æi sætar myndir af ykkur! Hefur verið alveg yndislegt að komast í frí á Tene :)
27. október 2008 klukkan 21:04
magga skrifar ...
Tene er málið :)
skemmtilegar myndirnar.....
og ég er svo sammála þér að þó svo að dollarinn sé einhvað helvíti þá er ALLTAF ódýrara en hérna á þessu kulda skeri.
en já jákvætt er að jólin nálgast :)
knús og þú ert hel-tönuð á myndunum :)
27. október 2008 klukkan 21:21
Tinna skrifar ...
Kvitt kvitt. Flottar myndir af ykkur sæta fjölla!
28. október 2008 klukkan 10:34
systa skrifar ...
ja bara gaman að fara allir saman til útlanda! eg og halli getum passað;) alltaf gaman að sjá myndir þó þær seu 300!!:) bara betra
28. október 2008 klukkan 12:46
Ábbni skrifar ...
Dollarinn verður í kringum 500 kallinn þegar þú ferð út þannig að þú verður bara grounded inni í húsinu hjá Sigga frænda þínum og étur það sem er í ísskápnum hans. Þú færð kannski að kaupa þér einn varalit ef þú verður góð.
28. október 2008 klukkan 17:20
Ásgerđur skrifar ...
hhaha góður Árni!

já ég er sko buin að vera með barni í laaangan tíma.. en það styttist! :D

Sjá þessa krútt bræður í útlöndum! bara sætastir!


og já allir saman til útlanda!
28. október 2008 klukkan 21:20
Sara Natasha skrifar ...
vá hvað mig hlakkar til að fara út jejejejejejeejej ooo þetta verður skemtilegasta ferð í heimi :) love u and youre simply the best ;)
02. nóvember 2008 klukkan 20:39
Sjöfn skrifar ...
Sæta fjölla á Tene!! get ekki beðið eftir að fara með öllum út:)
04. nóvember 2008 klukkan 21:19
Guđfinna skrifar ...
hæ skemmtilegar myndir, glæsileg fjölskylda ;-)

Hvernig seturðu alltaf myndi í færsluna ?? hehe minnir mig á gamla tíma, alltaf þú að fixa bloggsíður fyrir mann og hvað annað :-)
08. nóvember 2008 klukkan 01:00

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Stađur: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur