JÆJA!!

VÁ, ég hef ekki einu sinni kíkt á mitt eigið blogg síðan ég veit ekki hvenær! Surprised -Það var varla að ég myndi leiyniorðið..

En eins og alltaf ætla ég að reyna að blása örlitlu lífi í þessa síðu..ef ég væri ekki búin að blogga síðan 2003 þá myndi ég bara hætta, en ég einhvern veginn "tími" því ekki.. Hvað er það?

Jólin okkar voru yndisleg, svo róleg og þægileg. Við vorum með okkar eigin jól í fyrsta sinn, en við nenntum ómögulega flakki með tvo litla grísi og alla pakkana sem þeim fylgja á sjálft Aðfangadagskvöld. Þess í stað fengum við fjölskyldu Árna til okkar, og haldiði að mín hafi ekki bara galdrað fram þessa líka vel heppnuðu jólamáltíð; hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Ég sló í gegn gott fólk, þó ég segi sjálf frá. Matarást Árna á konu sinni jókst enn meira við þessi snilldarbrögð mín í eldhúsinu. BRAVÓ fyrir mér.



Gamlárskvöldi eyddum við svo bara ein heima. Róbert Elí greyið er svo taugaveiklaður þegar kemur að flugeldum (ásamt svo mörgu öðru) að hann fór að sofa snemma til að "sleppa frá sprenginu". :) Birkir sofnaði líka á skikkanlegum tíma, þannig að þetta endaði með því að við Árni borðuðum bara tvö og sötruðum rauðvín. Svo bara horfðum við á óvenju gott skaupið og skáluðum svo þegar nýja árið gekk í garð. Allt rosa rólegt, en bara yndislegt og þæglegt. :)



Strákarnir mínir eru alltaf jafn frábærir og fullkomnir, og Árni auðvitað líka. ;) Birkir Ísak er orðinn 8.5 mánaða, spáið nú aðeins í því! Eftir 3.5 mánuði verðurinn drengurinn stjarnan í eigin afmælisveislu! GUÐ! Og fyrr en varir þarf ég að láta hann frá mér í daggæslu og það svíííður í mömmuhjartað get ég sagt ykkur! Ég næ þó að vera með hann heima þar til hann verður 11-12 mánaða og það er bara nokkuð gott! :)



Róbert Elí er snillingur get ég sagt ykkur, hann er ekki til í að kveðja jólin strax, les jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum á hverjum degi og er á góðri leið með að læra þau utan að. Hann segist elska Grýlu, því að ef hann elski hana þá vilji hún ekki borða hann. Ágætis pæling. Svo er það spurningaflóðið sem dynur á okkur Árna á hverjum einasta degi. "Hvað er hlutur? Afhverju bý eg hér? Hvað er rigning? Hvað er frost? Hvað er að æmta og skræmta? Hvað er NES?" OH BOY, stundum vitum við ekki hvað við eigum að segja. Hann er svo mikill lestrarhestur og maður kemst ekki í gegnum eina blaðsíðu án þess að hann stoppi mann nokkrum sinnum til að spyrja hvað hitt og þetta orðið þýði. Best var samt þegar hann spurði mig í IKEA um daginn "Mamma, elskar þú pabba jafn mikið og ég elska Birki?". Já bræðrakærleikurinn er strax orðinn ansi sterkur og það er bara BEST! :)



Núna erum við Sjöfn og Erla komnar af stað í ræktinni, eins og væntanlega allir aðrir landsmenn svona í ársbyrjun. Ég og Sjöfn fórum í nokkurs konar BodyPump tíma á mánudaginn og ég er ennþá að líða fyrir þennan tíma. Guð minn aaaalmáttugur hvað ég er með mikla strengi í lærunum!!! Þetta er sko ekki svona gott/vont heldur bara VONT! -og venst ekki einu sinni!

En nú finn ég munnræpuna bara styrkjast og styrkjast, og ætla að setja punkt hér áður en ég fer að skrifa um eitthvað hundleiðinlegt og ómerkilegt..Kannski var þetta blogg bara hundleiðinlegt og ómerkilegt? Anyways, ég vil bara enda þetta á því að kalla á litla vin minn í bumbunni hennar Ásgerðar..KOMDU ÚÚÚT! :)

BÆ Í BILI

r  e  g  í  n  a  :)



P.S EF EINHVER LES ÞETTA ENNÞÁ ÞÁ MÁ SÁ HINN SAMI ENDILEGA SKILJA EFTIR SIG SPOR Í KOMMENTAKERFINU HÉR FYRIR NEÐAN. VÆRI EKKERT SÉRSTAKLEGA SKEMMTILEGT AÐ VERA AÐ BLOGGA BARA FYRIR SJÁLFA SIG. :)
08. janúar 2009 klukkan 12:32
Regína Diljá
systa skrifar ...
ohh kósý áramót hjá ykkur! mín voru sko ekki svona róleg get eg sagt þer! ja skaupið var gott:)
08. janúar 2009 klukkan 13:23
Ásgerður skrifar ...
já Strákur, úúút!!!! eins og Systa sagði!
pant fara með ykkur í ræktina við fyrsta tækifæri! :D
08. janúar 2009 klukkan 13:34
Audur osk skrifar ...
Ohh skemmto tu alltaf flottir strákar og æeg er best
08. janúar 2009 klukkan 13:35
systa skrifar ...
get nu ekki tekið allann heiðurinn fyrir strákur út! þar sem að allir vita að siggi á þessu setningu skylirðislaust! eða gaur sem var að vinna með honum:)
08. janúar 2009 klukkan 13:42
Sjöfn skrifar ...
kvitt,kvitt
Sætar myndir af ykkur fjöllunni eins og alltaf:)
áfram Ásgerður!!!
og sjáumst svo í ræktinni á eftir, vúhú!!!
08. janúar 2009 klukkan 14:10
Guðfinna og Guðjónjá kvitt hér, eg er líka búin að blogga :-)
En ótrúlega eruði myndarleg fjölskylda
08. janúar 2009 klukkan 15:00
ruz skrifar ...
hahahah STRAKUR UUUUTTT..já einn klassi frá honum sigga. Taktu það til þín ásgerður, farðu að kreista krílið út. Og en gaman að ÞAÐ ER HVERGI NEFNT HVERSU MASSA PARTÝ VIÐ HJÓNIN HÉLDUM FYRIR ALLA...flokkast kannski undir ómerkilegt, veit ekki.

En þið eruð hot famí og ég er ennþá hottari.

love peace unity
08. janúar 2009 klukkan 17:20
Linda Hlín skrifar ...
Kossar og knús sæta! :*
09. janúar 2009 klukkan 00:21
Tinna skrifar ...
Flott fjölla!! Ég HATA að þið séuð allar í sporthúsinu.. ömurlegt place!!
09. janúar 2009 klukkan 01:01
Íris Erla skrifar ...
já ég er sko alveg til í að fá smá að knúsa þorsteinsson...!! STRÁKUR ÚT!!
09. janúar 2009 klukkan 01:47
Eva María skrifar ...
Hér eru mín spor Rexý!

Það var greinilega yndislegt hjá ykkur um jólin :)

Mig langar líka að sjá lilla Þorsteinsson ! Koma svo Ása!
09. janúar 2009 klukkan 14:09
Regína skrifar ...
ÁSA ER KOMIN UPPÁ DEILD!
vííííí!

strákur UUUUT! :)
09. janúar 2009 klukkan 17:32

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Staður: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur