!
Hæ elskurnar, mikið þykir mér vænt um það hvað þið voruð dugleg að kommenta á síðustu færslu,þó svo að það sé orðið svolítið mikið langt síðan ég skrifaði hana. Ég lofaði víst að vera duglegri hérna,og ætla að reyna að standa við það. Það er nefnilega ljótt að lofa og svíkja. Þetat er samt rosalega mikið Facebook að kenna. Það fer einhvern veginn allt þangað inn þannig að ég nenni ekki að endurtaka mig hér. EN núna ætla ég að fara að setja myndirnar mínar hingað inn aftur þar sem ég lenti í ljótu leiðindarmáli út af myndum sem var STOLIÐ af Facebook síðunni minni og settar í Séð og Heyrt takk fyrir. Passið myndirnar ykkar kids!En er það bara ég eða FLÝGUR tíminn áfram?? Það er kominn fimmtudagur,en mér finnst hafa verið föstudagur í gær! Þetta er kannski ágætt því þá verður sumarið komið áður en maður veit af. -Samt svolítið langsótt þar sem það er svo ísjökulkalt hérna á þessu skeri að mér er hreinlega alltaf kalt og alltaf með eitthvert kvef og illt í hálsinum eins og aumingi. Það fylgir svo þessum einkennum að vera með króníska ljótu og ég tel Árna bara nokkuð góðan að geta búið með þessu sívælandi ljótuskrímsli án þess að þurfa hreinlega á einhverri sálfræðiaðstoð að halda. Hann er sterkur hann Árni,alvöru karlmaður!
En ómæ, sorrý gotta gó! Glæstar vonir voru að byrja og ég er ansi hrædd um að Taylor eða Nick verði kennt um morðið á Shane McGrath..sem var svo alls ekkert morð! Ó litli mannfjandinn hann Ridge Forrester..alltaf að gera allt brjálað! VERÐ að fylgjast með þessu..!
BÆ KIDDÓS!
r e g í n a :)
-ein uppáhalds að lokum:

r e g í n a :)
-ein uppáhalds að lokum:

-ekkert svo skítugur, er það nokkuð???


12. febrúar 2009 klukkan 10:15
Regína Diljá
Regína Diljá
