31maí
Ja ja jaaaa..
Já ég segi nú bara GLEÐILEGT BLESSAÐ SUMARIÐ!! Loksins kom það! :) -Og ég er ekki að hata það.Kominn tími á smá hlýjindi hérna á þessu landi..Það er náttúrulega ekki í boði að vera með næturfost í enda maí! Það er bara rugl, og mér sýnist veðurguðirnir og Siggi Stormur hafa séð að sér í þessum málum. Flott hjá þéim! 2 thumbs up..heyyy hóóóó!!

Annars er ég bara byrjuð að fljúga á fullu..og ég er sko mikið mikið að fíla það! Ótrúlega skemmtilegt starf og FRÁBÆRT fólk! Held ég hafi bara aldrei kynnst jafn mikið af yndislegu fólki á jafn stuttum tíma! Lovitt! :) Mér líst bara svakalega vel á sumarið, ætla að vinna like kreisí, vera súpermamman sem ég er!, tjillá ógeðslega fallega pallinum sem minn undursamlegi Árni Kristinn smíðaði AAAALVEG sjálfur (ókei fyrir utan 2 holur sem Maggi og Olli mokuðu hver) og bara hafa það ógeðslega næs. Það eru allir alltaf velkomnir í sumartjill á pallin yndislega! :) Svo erum við hjú nú að reyna að finna hentugan tíma fyrir BBQ pateiiiii!! :o) -en þið vitið það nú öll að við kunnum sko að halda partý!! Heyyyy hóóóóó! :)

Svo er það auðvitað mál málanna..Já það er bryllupið góða hjá fólkinu góða..Siggi vinur minn ætlar að giftast Evu Ruzu vinkonu minni í Slóveníu þann 30 júní nk. og að sjálfsögðu verð ég viðstödd. Það yrði náttúrulega ekkert brúðkaup án mín. Ég og Natasha fljúgum til London 28 júní, verðum þar í góðu tjilli a Oxford Street í einn dag, og fljúgum svo til Slóvó daginn eftir. Ef allt gengur að óskum bætist lítill og ógurfagur Arabi í hópinn, engin önnur en yndisfríð Katrín Amni. Við verðum í Slóvínía í 2 daga, og svo er brunað áleiðis heim í raunveruleikann á ný. Mikið hlakka ég til að sjá þetta yndislega fólk sem ég elska svo ógurlega mikið, gifta sig og fara í sleik fyrir framan prestinn, sem Eva segir bytheway að sé heví töffari á mótórhjóli með RayBan gleraugun og allan pakkann..Ég hugsa að það verði barist um þenna gæja..Eva..er hann nokkuð giftur? :o)

--þríeykið ógurlega..heyr! er nokkuð hægt að gifta 3 í einu? þá gætum við öll verið hjón!!?? og kannski árni líka???? Eva?? Til í þetta????--
Svo ætlum við lille famílíen að skella okkur í uppáhaldsbústaðinn um helgina, Bifröööööst hírvíkomm! Pottur, grill, Róbíknús, göngutúrar, GLANNI!, og fleira og fleira. Það er ALLTAF gott að komast í bústaðartjill.. :)

--hér verð ég um helgina..oooh það er svo fallegt þarna..elskaða!--
En jæja, ógeðslega hresst blogg að baki, ég er farin út að hreyfa mig í góða veðrinu..SKÁL!! Heyyyy hóóóó..já ókei eins og glöggir lesendur sjá þá er ég með "heyyyy hóóóó" á heilanum og það er ógeðslega pirrandi. -En ógisslega hresst samt sem áður, og ég er hressa týpan í dag þannig að það skiptir ekki.. ;)
BLESS,
R E G Í N A :)
p.s skellti undirskriftinni í svona ógeðslega hressan bleikan lit því að ekki gleyma: ég er ógeðslega hress týpa í dag!
p.s.s HÉR verð ég í fríðum hópi, eftir 29 daga! Fallegt! Enda bara fallegt fólk sem kemur þaðan!! :) :) :)

p.s skellti undirskriftinni í svona ógeðslega hressan bleikan lit því að ekki gleyma: ég er ógeðslega hress týpa í dag!
p.s.s HÉR verð ég í fríðum hópi, eftir 29 daga! Fallegt! Enda bara fallegt fólk sem kemur þaðan!! :) :) :)





















Um kvöldið fór ég svo út að borða með elsku bestu flugu-vinkonum mínum og Magga sæta ;). Við fórum á Tapas og maturinn var GEGGJAÐUR eins og alltaf. Svo var það bara gleði langt fram eftir í frábærum félagsskap. Sunnudagurinn var svo alþjóðlegi megrunarlausi dagurinn, og má segja að ég hafi haldið daginn MJÖG hátíðlegan hehehe. :) 



