28febrúar

..-mömmumontblogg-..

Jæææææja gott fólk..

..rosalega er tíminn farinn að fljúga frá mér eitthvað..32 vika meðgöngunnar hafinn og ég aldeilis farin að sjá fyrir endan á henni..Og farin að átta mig á því að eftir ca.2 mánuði er ég orðin tveggja barna móðir. Örlítið spes. En yndislegt alveg hreint og mikið sem mig hlakkar til. Litli púkinn í bumbunni er m.a.s barasta kominn með nafn, haldiði að það sé? Við erum farin að kalla hann nafninu sínu svona okkar á milli, en fram að skírn verður það bara leyndóið okkar Árna..og púkans að sjálfsögðu. :) Hann verður svo skírður fljótlega eftir fæðingu eins og Stóri Brói, en Róbert var skírður 3 vikna.



Hreingerningaræðið ætlar engan enda að taka. Það er aldrei nokkurn tímann drasl heima hjá mér, sem er ágætis afrek þar sem að einn tveggja og hálfs árs grallari er á heimilinu. Verður gaman að sjá hvernig manni tekst að halda þessu svona þegar maður er orðin ofboðslega upptekin, svefnlaus og þreytt tveggja prinsa móðir. :)

Annars er hann Róbert minn Elí officially kominn á gelgjuna. Það er allt "ókei" eða "ómægad" þessa dagana, og hann gerir í því að reyna að ræna skóm vina sinna á leikskólanum þegar við erum á leiðinni heim. Hann vill sko ekki sjá skóna sína, ó nei þeir eru aðeins of lummó greinilega, þannig að hann treður sér í einhverja skó sem hann finnur, helst stígvél, og kemur svo arkandi til mömmu sinnar, svakalega stoltur og oftar en ekki í krummafót. Það tekur miiiikla þolinmæði og rökræður af minni hálfu til að fá hann í sína skó og loksins út. Og þá þarf minn sko að fá sólgleraugu í bílnum, enda "töffari" eins og hann segir sjálfur. Svo situr hann með eitthvað kjánaglott yfir því hvað hann sé flottur og segir svo múttu sinni hvernig dagurinn hans var. Æ hann er orðinn eitthvað svo fullorðinn. :)

Svo er hann líka á þeim skemmtilega aldri sem oft er kallaður "Terrible Two". Þá breytast sem sagt þessi ljúfu og fullkomnu litlu englar í litla skæruliða sem ætla sér að ná heimsyfirráðum, sama hvað þarf til.

-Já, það er sko snilld að vera mamma. Það er allavega snilld að vera mamma hans Róberts Elís. Hann er svo fyndinn, hann er svo skemmtilegur. Endalaus duglegur, og með eindæmum gáfaður. Hann er sko bestur. :)



Hvernig týpa ætli litli bróðir hans verði?

Verður það annar orkubolti, eða kemur kannski rólyndisgaur?

Ég held þeir verði alveg eins bræðurnir. :) Og þá verður sko fjör hjá litlu fjölskyldunni á Eskivöllum. :)

Ég hlakka svo til..Hlæjandi





P.S

Trilljón nýjar myndir á síðunni hjá Róberti Elí.

R E G Í N A





28. febrúar 2008 klukkan 19:17
Regína Diljá
6 athugasemdir
18febrúar

Laugardagskvöld međ Sally Spectra og Ridge Forrester

Ég var svo heppin að fá að eyða síðasta laugardagskvöldi með góðvinum mínum af skjánum, þeim Sally Spectra og Ridge Forrester.

Það var sem sagt grímupartý hjá Auði, og að sjálfsögðu voru það Auður Ósk og Eva Ruza sem brugðu sér í gervi þeirra Sallyar og Ridge. Þær voru ekkert að hafa lítið fyrir því, þær m.a.s skelltu sér á hárkolluleigu Kolfinnu takk fyrir og leigðu sér kollur fyrir kvöldið. Þetta var útkoman:





Það var ansi skuggalegt hvað Eva varð virkilega karlmannleg og margir tóku feil á henni og karlmanni.

En það voru fleiri í partýinu góða, eins og t.d Amy Winehouse, Pamela, Gwen Stefani og svona sitt af hvoru tagi.

Ég var að setja myndirnar inn á myndasíðuna, þið VERÐIÐ að skoða þær!! :)

En hér er smá prívjú:














BÆJÓ

r e g í n a :)
18. febrúar 2008 klukkan 12:32
Regína Diljá
11 athugasemdir
15febrúar

Aaaasskotans...

..í nótt svaf ég í hvorki meira né minna en þrjár heilar klukkustundir. Ég lá svo brjálæðislega andvaka inni í rúmi, að berjast við sjálfa mig því mig DAUÐlangaði fram að ÞRÍFA takk fyrir. En svona í virðingarskyni við Árna & Róbert þá lét ég það vera, þó svo að ég hafi gersamlega heyrt AJAX lemon-ið kalla á mig innan úr eldhúsinu. Já sjáiði til, ég er nefnilega sjúk í Ajax Lemon skúringasápu. Á meðan aðrar óléttar konur fá "cravings" í yfirleitt eitthvað matarkyns, þá fær fröken Regína Diljá óstjórnlegar lyktarlanganir. Uppáhaldslyktirnar, sem sagt lyktir sem ég virkilega hugsa um allan daginn, friðlaust, eru bensínlykt og lyktin af tjöruhreinsi og bílabóni. Geymslulyktir og bílskúrslyktir eru líka að gera mikið fyrir mig. Ajax lemon er líka í miklu uppáhaldi, svo miklu að ég er farin að þrífa allt heimilið á hverjum degi upp úr þessari sápu svo að heimilið lykti nú eins og mér einni  hentar. Þá er ég líka farin að planta litlum skálum með sápunni í hvert einasta herbergi út um alla íbúð svo að það sé almennileg lykt í slotinu. -Samt verð ég aldrei ánægð. Alveg hreint óþolandi.

Ef það er eitthvað sem gerir mig óstjórnlega geðstirða og leiðinlega, þá er það þegar ég er annaðhvort brjálæðislega svöng eða þreytt. Þá má ekki yrða á mig án þess að ég urri á viðkomandi. Dagurinn í dag er soldið svoleiðis. Ég vorkenni sjálfri mér svo hrikalega fyrir það hvað ég svaf lítið í nótt að það skulu sko allir fá að gjalda fyrir það. Múahahha..neinei, pirringurinn er nú fokinn burt sem betur fer..-Enda með frábæran félagsskap því það er starfsdagur í leikskólanum hans Róberts í dag. Hann er kannski full hress miðað við hvað ég væri til í að vera afslöppuð og kúra út í hið óendanlega, en ekki kvarta ég yfir því að barnið mitt sé lífsglatt og hamingjusamt er það?? :)

-Talandi um Róbert Elí, þá er það ótrúlegt hvað tveggja og hálfs árs krakkagrís getur verið útsmoginn. Hann er búinn að taka upp á því síðustu nætur að vakna um miðja nótt og kalla á okkur að koma til sín. Þá vill hann að við sitjum hjá honum þar til hann sofnar aftur, sem getur verið leiðinlega langur tími að okkar mati. Í nótt ákváðum við svo að taka á þessu, þetta væri bara ekki í boði lengur enda sef ég nógu illa fyrir og Árni greyið stendur morgunvaktina með Róberti á hverjum morgni svo að ég geti dormað eitthvað lengur.

-Jæja, hann sefur bara svaka vel í nótt, þar til kl. 5 þá heyrist innan úr herberginu hans "Pabbi, hvar ertu? Ég er vaknaður." Árni fer inn til hans og segir honum að það sé nótt og að hann skuli sofa aðeins lengur og fer svo aftur fram. Þá byrjar minn maður að orga sem aldrei fyrr og setningarnar sem komu út úr honum voru alveg magnaðar. Þær gnístu svoleiðis í hjartað að það hálfa væri nóg. Setningar eins og "Ég elska svo mömmu mína", "Komdu að hugga mig pabbi" og "Ég er að gráta svo mikið" svifu hér um loftin og við reyndum að harka þetta af okkur, en fórum mjög reglulega, á nokkura mínútna fresti inn til hans og sögðum að það væri nótt og þá ætti maður að sofa. (Þekkt svæfingaraðferð frá svefnráðgjafa, bara svona að leyfa því að fylgja með.. :) )

Alltaf fóru gullmolarnir að fjúka aftur og á endanum gat ég ekki hlustað á þetta lengur og rauk mjög dramatískt inn til hans með opinn faðm, tilbúin að hugga barnið sem væri væntanlega grátbólginn og rennblautur miðað við yfirlýsingarnar frá honum. Um leið og ég tek hann í fangið og knúsa hann þá fæ ég bara þetta breiða bros frá honum og "Hæ mamma". Svo strýk ég í burtu tárin, en aðeins til þess eins að sjá að það er ekki svo mikið sem eitt tár á hvarminum á honum. Hann var bara meeeega hress, skipaði mér að setjast og fór svo að heimta óskalög!!! Já ég átti bara að gera svo vel að setjast og fara að syngja bíbí og blaka og svo hina angurværu ballöðu Dvel ég í Draumahöll. Þar sem ég var svo þreytt og búin á því þá lét ég mig hafa það, söng litla þrjóskupúkann minn í svefn með gauli sem minnti helst á breimandi kött. Ótrúlegt að drengurinn skuli hafa getað sofnað undan þessum ósköpum.



Hann vann þessa baráttu drengurinn, en ég vinn þá næstu! -Og hana nú!
Hlæjandi

En ég er farin..Við Róbí erum að fara að LEGGJA OKKUR takk fyrir!! Jíhaaaa.. :)

Nýtt albúm á myndasíðunni..







Kv. r e g í n a :)
15. febrúar 2008 klukkan 11:42
Regína Diljá
6 athugasemdir
07febrúar

Febrúar mćttur..jahérna.

Fyrsta public appearancið hennar Christinu stórvinkonu minnar síðan Max sonur hennar fæddist. Ég segi bara "va va vííí va". Þð munar ekki um mjólkurframleiðsluna á þessum bænum sýnist mér! :)



Og hvenær í ósköpunum fær maður að sjá mynd af krakkanum hennar Nicole Richie? Ég er orðin ofsa spennt. Mikið held ég að það sé frítt barn.

En yfir til Íslands..

..og alla leið í Fjörðinn..

..Ég er sem sagt komin í veikindaleyfi. Búin að vera iðjuleysingi síðan á mánudaginn og það er ekki gaman fólk! Ekki gaman! Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur þrifið mikið eða tekið til. Og veðrið er barasta ekki að vinna með mér í þessum málum. Ég kemst ekki einu sinni út að labba. Ef ég væri ekki svona sver um mittið þá myndi ég bara kýla á hörku göngutúr, en þegar maður er í þessu "ástandi" þá tekur maður sko enga sénsa. Ég býð ekki í það að detta úti og lenda á kúlunni. ÚFF, nei þá frekar húki ég inni. Þarf reyndar að fara að stússast allan fjandann fyir fæðingarorlofsumsóknina okkar..ÓBÓJ hvað þetta er leiðinlegt dæmi þetta fæðingarorlof. Pappírsvinna dauðans. Öskrandi

Annars skelltum við lille familían okkur á Bifröst í bústað um síðustu helgi, í kuldakastinu mikla. Það vildi ekki betur til en svo að þegar við komum loks uppeftir, þá var það ekki fyrir hvern sem er að komast að bústaðnum! Mittishár snjór allt í kringum húsið, og svona snjór sem er harður efst og þegar maður stígur á hann þá dettur maður í gegn. Sem sagt ekkert hægt að gera nema hanga inni, sem var kósý vissulega, en maður var nú farinn að vorkenna Róberti greyinu sem var nú farið að leiðast ansi mikið að hanga með dótið sitt í lítilli stofu og mátti ekkert fara út eða neitt. -En var samt endalaust að biðja um að fá að fara í rennibrautina. Þannig að við fórum heim eftir aðeins sólarhringsdvöl í sveitasælunni, eftir að hafa samt haft það svakalega næs í þennan sólarhring sem við vorum þarna. :)



Bolludagurinn svo kominn og farinn, við Árni stóðum okkur hreint ágætlega í bolluáti, en Róbert Elí sá um það að borða súkkulaðið ofan af bollunum sínum. :) Hann er nefnilega mjög spes í matarmálum. Hann borðar ekki ís, borðar ekki rjóma, borðar ekki kökur, borðar ekki popp. Ekkert svona sem krakkar eru yfirleitt sjúkir í. -En sonur minn er hins vegar súkkulaðisjúkur. Það er bara ekki hægt að neita því. Ekki sonur okkar Árna fyrir ekki neitt. :)



Sprengidagurinn kom svo bara og fór, og ég tók sko ekkert eftir honum því ekki borða ég saltkjöt og baunir, oj nei! Baunasúpan er einn mesti horror sem ég hef smakkað. Bjakk.

En svo kom sprengidagurinn, og á leikskólanum hans Róberts var ekki í boði að koma í búning, heldur áttu þau bara að koma á náttfötunum. :) Honum fannst það MEGA sniðugt, mætti að sjálfsögðu í Spiderman náttfötum og upplifði sig sem Spiderman sjálfan þegar hann mætti á leikskólann. Fór að skjóta köngulóarvef á alla og segja "tss" eins og Spædermanninn gerir víst. :) Alger gaur. Svo skildi greyið auðvitað ekkert í því að hann fengi ekki að fara í náttfötunum í leikskólann í dag líka. "Rökræddi" mikið við pabba sinn. (sem sagt grenjaði og öskraði;)). ÚSS, hvað það er best í heimi að vera mamma og eiga svona lítinn skemmtilegan gullmola og eiga m.a.s von á öðrum! Mér finnst ég svo ótrúlega heppin að ég á ekki til orð til að lýsa því. Smá væmni í gangi, en það verður ekki hjá henni komist þegar barnið manns segist elska mann svo mikið og hann er svo innilega einlægur þegar hann segir manni það. BESTUR! :)



Róbí fór annars í fyrstu leikskólamyndatökuna sína á þriðjudaginn, og ég verð bara að láta tvær myndir af því fylgja með. Ekkert lítið fjör greinilega! :)





Hann er sem sagt í efri röð, akkúrat fyrir miðju. :)

En gott fólk, nú hef ég látið móðann mása um ekkert sem ætti að þykja neitt sérstaklega spennandi þannig að ég segi bara bless í bili.

Setti inn myndir á myndasíðuna frá bústaðnum. Sendið endilega fyrirspurnir um lykilorðið í gegnum 123.is, þá er það svo ísí písí fyrir mig að senda það til baka. Ég nefnilega er svo gleymin þessa dagana að ég man ekkert hverjir biðja um leynið í kommentakerfinu. Damn hormones maður!! :)

A Ð Í Ó,

R E G Í N A :)

----------------------------------

..og bumbumynd segiði, hér er ein:



Þetta er sem sagt Hlunkmundur Kvaran, hin átsjúka, komin 28 vikur takk fyrir.
Styttist í púkann. :)

07. febrúar 2008 klukkan 16:28
Regína Diljá
5 athugasemdir
01febrúar

3D SÓNAR..

Ó MINN GUÐ! ! ! :)

Við vorum að koma úr þrívíddarsónarnum og ég gersamlega svíf um á ljósbláu skýi núna! :) Við sáum litla kútinn okkar svo vel, hann var svo fallegur, svo fullkominn með sínar yndislegu tíu fingur og krúttlegu tíu tær. Svo lítur allt út fyrir það að á leiðinni sé lítið klón af Róberti Elí! Okkur leið í alvöru eins og við værum að horfa á Róbert ELí á skjánum. :) Ekki leiðum að líkjast þar! ;)

Sjáið bara þetta litla YNDI..







OG LITLIR FINGUR OG LITLAR TÆR..



Bæ í bili..er eitthvað svo hyper að ég get ekki skrifað.. :)

R E G Í N A

:) :) :)

P.S FLEIRI MYNDIR Á SÍÐUNNI HANS RÓBÍS! :)
01. febrúar 2008 klukkan 16:55
Regína Diljá
12 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Stađur: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur