07desember
NYC BABY..!
Jæja, þá er ég farin til NY og komin hem aftur. Ég átti yndislegar stundin í New York með Natöshu minni, verslaði furðu mikið miðað við hátt gengi dollarsins og fór svo að hitta vinkonu mína Tinu Turner þar sem hún söng fyrir mig nokkra slagara og gerði allt brjálað. Konan sú er 69 ára takk fyrir, og hljóp í 3 tíma út um allt svið á pinnahælum og blés ekki úr nös. Ég held við höfum verið eitt sólheimabros alla tónleikana, og það er hálf vandræðalegt að skoða myndböndin sem ég tók upp því það heyrist alltaf í mér syngja fyrir aftan og öskra eins og alger bjáni "TIIIINA!!". :) Takk enn og aftur elsku besti Árni minn fyrir bestu afmælisgjöf í heimi!


Tina elskan var samt ekki eina celeb-ið sem við rákumst á, heldur sáum við líka Brooke, Nathan og Dan úr ógeðis þættinum One Tree Hill í Leifsstöð á leiðinni út (Brooke og Nathan bara alvöru kærustupar, í sleik og allt), svo lentum við á útitónleikum í NYC með Jonas Brothers, Tony Bennett, hinni óþolandi Miley Cyrus og fleirum. Mér skilst að Beyonce hafi verið þar líka en að við höfum misst af henni. Natasha er svo alveg viss um að hafa mætt Lucy Liu og svo mættum við leikara sem ég bara GET EKKI munað hvað heitir og það er að gera mig brjálaða!! -Þannig að já, þvílík stórstjörnuferð.. :)
---------------
Við vorum á Long Beach hjá Sigga frænda og Lis konunni hans og þau eru best í heimi. Þvílíkt sem þau stjana alltaf vð mann. Það er svo á langtímaplaninu að vera á Long Beach að sumri til því að þar er ótrúlega falleg strönd og bara svo hrikalega sætur bær. Árni bjó þar þegar hann var úti í skólanum, en samt hefur hann ekki upplifað sumar þar því hann fór alltaf heim að spila fótbolta á sumrin. Svo ætlum við Árni að flytja inn á Manhattan í einhverja fallega loft íbúð þegar við erum orðin fullorðin og börnin flogin úr hreiðrinu. ;) Ég er svo yfir mig ástfangin af þessari borg og bara fæ hreinlega ekki nóg af henni.
Við sáum allt þetta venjulega; Central Park, Empire State, Soho, China Town, Rockefeller center, Times Square og mitt persónulega uppáhald 5th avenue(shallow?). Einn daginn ætla ég að geta gengið 5th avenue og gera meira en bara "window-shoppa". Þá skal ég ganga inn í Salvatore Ferragamo eins og ekkert sé eðlilegra og kaupa mér sitthvað fallegt. Ef ég hefði vogað mér þar inn núna og keypt mér kjólinn og skóna sem ég DÓ yfir í glugganum, þá hefði ég verið ca. 5 ár að borga það niður. :)









Við versluðum nú samt alveg slatta, fjölskyldan er öll komin með ný jólaföt þannig að jólakötturinn lætur okkur vera þessi jólin. Allar jólagjafir eru komnar og það er mikill léttir að vera búinn að því.
Ég saknaði strákanna minna mikið mikið, en Árni stóð sig eins og hetja einn heima með þá, skellti sér m.a.s einn með þá báða í sund einn daginn. :) Mér var svo tekið eins og stórstjörnu þegar ég kom inn um dyrnar í gærmorgun, þeir svoleiðis stukku á mig strákarnir..-eða allavega Árni og Róbert, Birkir æstist bara allur upp og baðaði út höndunum með sólskinsbros á vör. Svo má mamma ekki fara úr augsýn án þess að hann verði ofsalega sár. Greinilega gott að vera búinn að fá mömmu sína aftur. :)
-en jæja, maður tímir ekki að eyða tímanum í tölvuna þegar maður er loksins kominn heim til bestu stráka í heimi. Ég er farin að leika, væntanlega í ljóna eða risaeðluleik. Bæ í bili.
r e g í n a


