14janúar

Æ mig auma..

..ó hvað mig dreymir um 10 tíma nætursvefn, án nokkura truflana. Í nótt tók hann Birkir minn upp á því að vakna ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur ca.15 sinnum, þar til hann vaknaði galvaskur klukkan 05:50! Það er eintómt vesen að eiga svona A-týpu börn. Ég sé ekki fram á almennilegan nætursvefn í allavega 10 ár í viðbót. Ég er sko með baugana til að bakka þessa skemmtilegu sögu upp, og svo er það auðvitað geðvonskan sem geysir sem aldrei fyrr. Það klæðir mig afskaplega illa að vera þreytt.



-svo ofan á allt þetta þá bara kyngir niður snjó! Ég man ekki eftir því að hafa lagt inn pöntun fyrir þessu veðri! Ég sem var að komast í (ótímabæran) sumarfíling! Æ mig auma.

En svona utan þessa að ég sé þreytt, með bauga niður á hné og eilítið pirruð, þá er allt gott að frétta svei mér þá. Birkir Ísak er farinn að skríða, orðinn hættulegur m.a.s. Það er ekki í boði að sleppa af honum augunum eitt andartak þegar hann er on the go. Hér er allt tætt og tiltektin sem fylgir þessu er ofsalega skemmtileg(sjáið hvað ég er að reyna að vera jákvæð). Hann kann líka að segja mamma(auðvitað!),pabba,hæ!,datt og NEI! Duglegur strákur, enda ekki við öðru að búast. ;)



Og þó ég ætli nú að halda fréttum af strákunum á þeirra síðu, þá verð ég nú að segja ykkur hverju unglingssonur minn(eða svona næstum því) tók upp á í gærkvöldi. Hann er alveg rosa hrifinn af því að tússa, en virðist hafa erft það frá móður sinni að teikna svolítið fast þannig að hann skemmir tússlitina sína á no time. Þar sem ég vil ekki blokka sköpunargáfuna hjá litla listamanninum sem teiknar hverja geimflaugina á fætur annari(hann teiknar ekkert annað,án gríns) þá fór ég og keypti nýja tússliti fyrir hann í gær þar sem hann vill ekki lita með neinu öðru. Þvílík hamingja þegar hann fékk nýju litina, mamma var sko best og brosið náði yfir allt andlitið. Hann fékk leyfi til að teikna inni í sínu herbergi, og svona eftir á að hyggja þá voru það mistök að leyfa það. Eitthvað hefur pilti þótt leiðinlegt að jólin væru búin, því þegar ég kem inn til hans þá sé ég "listaverk" út um allt herbergi! Á hurðinni, á veggjunum, á dótinu, bara nefnið það! Og það var ALLT herbergið! Hann haði klifrað upp á kommóður til að geta krotað á vegginn þar fyrir ofan. Það var sko metnaður í þessu hjá honum. Mér brá vitanlega og hrópaði "Róbert Elí!". Þá horfði hann bara á mig stórum augum, fór að gráta og sagði "En mamma, þetta er JÓLASKRAUT!!!"
Ég þakkaði bara fyrir það að hafa keypt "super washable" tússlitina.



Við Árni erum svo búin að plana næstu 3 á fram í tímann, en á þeim tíma verður brúðkaup,flutningar til Bandaríkjanna,mesterslok hjá Árna,heljarinnar brúðkaupsferð og annað barn. DJÓK þetta með barnið, en allt hitt er satt! ;) Þetta er sem sagt planið okkar, og það þarf eitthvað að koma upp á til þess að það verði ekki af þessu. Það eru sko spennandi tímar framundan ef allt fer að óskum, og ég hlakka til að geta farið að plana bryllaup og Ameríkuferð. :)

-sjáið hvað þessi var fín þegar hún gifti sig!


En þangað til ætla ég að hlakka til sumarsins, en sumarið verður komið áður en maður veit af. Við Sjöfn ætlum m.a.s í "mömmufrí" til Köben einhvern tímann í sumar, skilja alla mennina okkar eftir heima í 2-3 daga og fara að hafa það kósý á Strikinu með öl í annari og HM poka í hinni.

Svo ætla ég bara að enda þessa ritgerð á því að óska vinum okkar Ásgerði og Þorsteini til hamingju með litla kútinn, sem ég er orðin ansi spennt eftir því að hitta. Hann fæddist 10 jan, og var NÁKVÆMLEGA jafn stór og þungur og ég hafði spáð fyrir um. Þess vegna á ég inni bland í poka fyrir 50 kall hjá Tinnu, því hún tapaði þessu veðmáli illilega. In yo face!

BÆ Í BILI

r  e  g  í  n  a  :)
14. janúar 2009 klukkan 10:02
Regína Diljá
17 athugasemdir
08janúar

JÆJA!!

VÁ, ég hef ekki einu sinni kíkt á mitt eigið blogg síðan ég veit ekki hvenær! Surprised -Það var varla að ég myndi leiyniorðið..

En eins og alltaf ætla ég að reyna að blása örlitlu lífi í þessa síðu..ef ég væri ekki búin að blogga síðan 2003 þá myndi ég bara hætta, en ég einhvern veginn "tími" því ekki.. Hvað er það?

Jólin okkar voru yndisleg, svo róleg og þægileg. Við vorum með okkar eigin jól í fyrsta sinn, en við nenntum ómögulega flakki með tvo litla grísi og alla pakkana sem þeim fylgja á sjálft Aðfangadagskvöld. Þess í stað fengum við fjölskyldu Árna til okkar, og haldiði að mín hafi ekki bara galdrað fram þessa líka vel heppnuðu jólamáltíð; hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Ég sló í gegn gott fólk, þó ég segi sjálf frá. Matarást Árna á konu sinni jókst enn meira við þessi snilldarbrögð mín í eldhúsinu. BRAVÓ fyrir mér.



Gamlárskvöldi eyddum við svo bara ein heima. Róbert Elí greyið er svo taugaveiklaður þegar kemur að flugeldum (ásamt svo mörgu öðru) að hann fór að sofa snemma til að "sleppa frá sprenginu". :) Birkir sofnaði líka á skikkanlegum tíma, þannig að þetta endaði með því að við Árni borðuðum bara tvö og sötruðum rauðvín. Svo bara horfðum við á óvenju gott skaupið og skáluðum svo þegar nýja árið gekk í garð. Allt rosa rólegt, en bara yndislegt og þæglegt. :)



Strákarnir mínir eru alltaf jafn frábærir og fullkomnir, og Árni auðvitað líka. ;) Birkir Ísak er orðinn 8.5 mánaða, spáið nú aðeins í því! Eftir 3.5 mánuði verðurinn drengurinn stjarnan í eigin afmælisveislu! GUÐ! Og fyrr en varir þarf ég að láta hann frá mér í daggæslu og það svíííður í mömmuhjartað get ég sagt ykkur! Ég næ þó að vera með hann heima þar til hann verður 11-12 mánaða og það er bara nokkuð gott! :)



Róbert Elí er snillingur get ég sagt ykkur, hann er ekki til í að kveðja jólin strax, les jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum á hverjum degi og er á góðri leið með að læra þau utan að. Hann segist elska Grýlu, því að ef hann elski hana þá vilji hún ekki borða hann. Ágætis pæling. Svo er það spurningaflóðið sem dynur á okkur Árna á hverjum einasta degi. "Hvað er hlutur? Afhverju bý eg hér? Hvað er rigning? Hvað er frost? Hvað er að æmta og skræmta? Hvað er NES?" OH BOY, stundum vitum við ekki hvað við eigum að segja. Hann er svo mikill lestrarhestur og maður kemst ekki í gegnum eina blaðsíðu án þess að hann stoppi mann nokkrum sinnum til að spyrja hvað hitt og þetta orðið þýði. Best var samt þegar hann spurði mig í IKEA um daginn "Mamma, elskar þú pabba jafn mikið og ég elska Birki?". Já bræðrakærleikurinn er strax orðinn ansi sterkur og það er bara BEST! :)



Núna erum við Sjöfn og Erla komnar af stað í ræktinni, eins og væntanlega allir aðrir landsmenn svona í ársbyrjun. Ég og Sjöfn fórum í nokkurs konar BodyPump tíma á mánudaginn og ég er ennþá að líða fyrir þennan tíma. Guð minn aaaalmáttugur hvað ég er með mikla strengi í lærunum!!! Þetta er sko ekki svona gott/vont heldur bara VONT! -og venst ekki einu sinni!

En nú finn ég munnræpuna bara styrkjast og styrkjast, og ætla að setja punkt hér áður en ég fer að skrifa um eitthvað hundleiðinlegt og ómerkilegt..Kannski var þetta blogg bara hundleiðinlegt og ómerkilegt? Anyways, ég vil bara enda þetta á því að kalla á litla vin minn í bumbunni hennar Ásgerðar..KOMDU ÚÚÚT! :)

BÆ Í BILI

r  e  g  í  n  a  :)



P.S EF EINHVER LES ÞETTA ENNÞÁ ÞÁ MÁ SÁ HINN SAMI ENDILEGA SKILJA EFTIR SIG SPOR Í KOMMENTAKERFINU HÉR FYRIR NEÐAN. VÆRI EKKERT SÉRSTAKLEGA SKEMMTILEGT AÐ VERA AÐ BLOGGA BARA FYRIR SJÁLFA SIG. :)
08. janúar 2009 klukkan 12:32
Regína Diljá
12 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Staður: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur