17maí

Loksins!

Þar sem örverpið mitt var ekki nema 11 mánaða síðast þegar ég hripaði eitthvað á þetta annars ágæta blogg,en er í dag að slefa í 13 mánaða,þá þykir mér við hæfi að henda á ykkur einni til tveimur línum. Enda ekkert nema skandall í bloggheimunum ef ég legg þetta blogg niður.

Það gefur auga leið að ef sonur minn er að slefa í 13 mánaða,þá sé hann búinn að eiga sinn fyrsta afmælisdag. Sá merkisdagur var hinn sögulegi 25 apríl,en þá ákváðu stjórnvöld að reyna að stela þrumunni hans með því að skella kosningum á þennan fallega dag. En það tókst ekki,Birkir Ísak var stjarna dagsins og hefur svo sagt mér að honum fannst kosningarnar aldrei skyggja á dýrðarsól hans eða gleði þennan dag. Það er nú gott.



Fótbóltasumarið hófst svo þann 10 maí þegar Pepsi deildin hófst formlega. Þar tóku Blikar á móti Þrótturum og unnu þá 2-1. Síðan þá hafa þeir spilað einn leik,en það var á móti ÍBV í stormi í Eyjum og unnu þeir þann leik 1-0. Þannig að þetta byrjar vel hjá þeim og vonandi að þeir haldi sér á þessari siglingu áfram. Það er svo leikur á morgun við FH og er það sjónvarpsleikur þannig að þar gefst fólki einstakt tækifæri á því að sjá kraftaleg læri spúsa míns á flatskjáunum sínum. Einnig vil ég benda fólki á að fylgjast með "Klónni" eða the Claw,en hana myndar Árni Kristinn með hægri hönd í hvert skipti sem hann einbeitir sér að einhverjum sprettinum,sendingunni eða tæklingunni. Hann er svo fjölhæfur og afsannar þá kenningu að karlmenn geti bara gert einn hlut í einu. Hér hef ég svo splæst saman smá myndasyrpu þar sem Klóin sést í allri sinni dýrð.



Það styttist svo í það að ég reimi á mig háu hælana á nýjan leik og fari að þjóna farþegum Iceland Express með brosi á vör og með ánægju að sjálfsögðu.  Mikið hlakka ég til,þetta er endalaust skemmtilegt starf og ef þið bara vissuð hvað ég vinn með miklum snillingum. Það er sko alltaf gaman í vinnunni.

Annars hefur gripið mig mikil hlaupabaktería og hef ég fjárfest í snildinni Nike Plus til að fylgjast með árangri og framförum mínum. Þetta er ótrúlega gaman og ekki verra þegar það heyrist í vini mínum Lance Armstrong eftir gott hlaup þar sem hann segir mér að ég hafi bætt eigið met í meðalhraða á klukkustund. Æ hann Lance er bara fínn gaur. Í framhaldi af þessari bakteríu hefur verið stofnaður hlaupaklúbburinn Hallbjörn,en hann samanstendur af allavega 10 ungum og stórglæsilegum konum og hittumst við einu sinni í viku og göngum/skokkum og slúðrum. Bara yndislegt.


-vinur minn hann Lance-

Svo varð heimurinn svo mikið mikið fallegri þann 3 maí þegar elskuleg bróðurdóttir mín kom í heiminn. Hún var 13 merkur og 50.5 cm. og lang fallegust og algerlega fullkomin. Enda á hún frábæra foreldra og fjölskyldu í báðar áttir. :D Ég er svo yfir mig skotin í þessari elsku,enda krúttan ekki nema 2 vikna gömul og ég á orðið nokkur hunruð myndir af henni. Ég hlakka svo til að fylgjast með henni vaxa og dafna og stefni ótrauð á titillinn "Uppáhalds frænka" og mun ég sinna þeim titli af miklum eldmóð og metnaði.







Heimurinn mun svo verða ennþá yndislegra á næstu mánuðum enda von á nokkrum krílum í vinkonuhópinn. Íris Erla er næst,og ekki nema einhverjir dagar í settan dag hjá þeirri fallegu perlu. Svo í ágúst bætast 3 kríli í hópinn,einn drengur hjá Auði elsku Ösp,og svo hvorki meira né minna en einn strákur og ein stelpa hjá ástinni minn Evu Ruzu. Eva verður myndarlegri og myndarlegri með hverjum deginum sem líður og loksins loksins loksins þegar allt gekk upp hjá þeim í barnagerðinni,þá gengur allt eins og í sögu. Svona á þetta að vera. :D


-Eva vælir reyndar svolítið mikið,en það er alltílæ! ;)

--------

En núna er ég búin að vera ofsa duglega bloggstelpa og þar sem sólin skín loksins í heiði og rokið heldur sig til hlés þá ætla ég að setja punktinn hér og æða hress og kát út í sumarið. Róbert Elí er að fara að kíkja á nýfædd lömb og fleiri skemmtilega dýr í sveitinni hjá Pésa frænda sínum og Birkir Ísak ætlar í heimsókn til ömmu sinnar og afa í Kópavogi á meðan við foreldrarnir ætlum að skella okkur austur fyrir fjall,fara í sund á Ljósafossi og skella okkur svo á Þingvelli og hygge okkur svolítið tvö saman. Það er ljúft svona einstaka sinnum,þó svo að maður eigi heimsins yndislegustu börn. ;)

Bæ í bili.
Regína :o)


17. maí 2009 klukkan 12:19
Regína Diljá
8 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

MYNDIR :)

Prófíll

  • Nafn: Regína Diljá
  • Stađur: Hafnarfj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur